Gagnrýni getur verið bæði góð og slæm. Þín gagnrýni var slæm, hreinlega til skammar, bæði niðurlægjandi fyrir mig og alla aðra sem tóku þátt í keppninni. Þetta var heldur ekki gagnrýni að mínu mati heldur einfaldlega skítkast.
Hefðirðu sagt: “Ok, ég fíla ekki greinarnar inni á myndinni. Hefðu þær ekki verið hefði myndin verið miklu betri,” þá hefði ég ekki sagt neitt við því enda er það góð gagnrýni og fullkomlega þín skoðun. En að segja: “Þessi kemst næst því að vera ”næstum“ góð. Greinarnar í fókus? W00t? Er alls ekki flott,” er svo heimskuleg og bjánaleg “gagnrýni”.
Ég get vel tekið gagnrýni, geri það á hverjum degi. Ég get líka vel tekið hrósi og geri það líka á hverjum degi. En svona “smá” gagnrýni eins og þín gerir engum gott.
Lífið gengur út á að vera númer 1, ekki númer 2.