Hún kostar 99.900 hérna, ca. 76.000 ef þú kaupir hana í fríhöfninni eins og ég gerði. Hef svosem ekki reynslu af öðrum vélum og þetta er fyrsta alvöru myndavélin mín en mér finnst hún reynast mér helvíti vel.
Ég var búinn að lesa mér til um hana lengi áður en ég keypti hana og var meðvitaður um alla kosti og galla vélarinnar. Góð vél fyrir áhugaljósmyndara með fullt af fítusum.
Ef þú ætlar hinsvegar að nýta þér videó-upptöku vélarinnar þá verðurðu að fá þér microdrive minni í hana, það er það eina sem heldur í við upptökuna í hraða og það eina sem hefur eitthvað pláss á ráði í upptökur. Hún tekur upp ótakmarkað videó í VGA upplausn (640x480) og er því með besta video-capture af öllum vélum á markaðnum, en til að gefa þér hugmynd af plássinu sem það tekur þá kemurðu 15 mín. á 1 gigabyte-a microdrive.
Videó-ið er nú alltaf bónus en vélin sjálf tekur skýrar og góðar myndir og er með öllum manual stillingum.
Ef þú vilt sjá rjómann af fyrstu myndunum sem ég tók með henni, kíktu þá á galleríið mitt:
http://www.pbase.com/unit_01/first_shots