Ég er nú frekar nýr hérna og er tiltölulega ný búinn að fá áhuga á ljósmyndun, mig langaði bara til að athuga hvernig ykkur lýst á myndina sem ég sendi inn hérna í kvöld, endilega segið mér hvað ykkur finnst.
Ég er ekki viss um það hvort að gæðin á skönnuninni eða myndin sjálf sé svona… en mér sýnist hún vera eilítið undirlýst, ekki það að mér finnist hún ekki flott, á hvaða hraða og ljósopi er hún tekin? Hreyfingin kemur vel fram. Fín mynd.
Ég fór að kíkja betur á myndirnar og fann aðra sem var aðeins betri, hún var tekin á 1 sek og F3,2 ef þið viljið kíkja á hana þá er hún á http://frontpage.simnet.is/kjarrij/P1180368.JPG hún er reyndar soldið stór, ca. 650 kb. Þegar ég tók þessar myndir var aðeins farið að dimma.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..