Ég á 60mm macro linsu sem ég keypti í Beco (Canon EF-s 60mm usm f/2,8 macro linsa). Hún er æði!
Þegar þær heita 60mm eða eitthvað þannig, þ.e. ein tala, eru þær ekki zoom linsur heldur fastar, sem þýðir að það er ekki hægt að breyta hversu nálægt maður virðist vera. Þannig að maður er ekki að zooma nálægt. Hinsvegar þýðir 60mm að hún virkar eins og sjónauki, “færir mann nær”, en venjulega er talað um 50mm sem “venjulega” eða normallinsu. Þ.e. með henni kemur allt út eins stórt og þú sérð það. (Reyndar á þinni vél, vegna stærðarinnar á örflögunni, þá virkar 35mm eins og normallinsa). Þannig að allt yfir 50mm kallast aðdráttarlinsur og allt undir eru gleiðar linsur.
Bara smá útskýring á þessum tölum, auðveldar þér valið ;)
Allavega, ég mæli með 60mm framyfir 100mm, bæði af því hún er aðeins ódýrari, hún gerir sama gagn og af því það er oft þægilegra að hafa ekki of mikinn aðdrátt. Ef þú ert með 100m þarftu að fara svo langt frá öllu til að ná að ramma almennilega inn, meðan þú getur farið nær á 60mm.
Svo koma líka mjög fallegar myndir með þessari linsu
Hér eru smá sýnishorn, flest tekið með þessari linsu nema þessar síðustu/elstu:
http://www.flickr.com/photos/aegishjalmur/sets/72157605481152970/Ég mæli samt með því að þú skreppir útí Beco og fáir að prófa. Ég gerði það, og valdi þá bara linsuna sem ég fílaði betur að horfa í gegnum.
Bætt við 9. ágúst 2008 - 20:21 Kannski finnst sumum það kostur að þurfa ekki að fara eins nálægt til að taka myndir, en mín reynsla af macro ljósmyndun er að það er þægilegra að geta farið nær. Ég er búin að vera að nota 105mm aðeins og það truflar mig pínu að þurfa alltaf að bakka og leggjast niður og eitthvað til að ná viðfangsefninu innan rammans :)