Sniðugt. Ég nota nánast alltaf Av eða Tv, nema þegar ég ætla að undir/yfirlýsa um meira en 2 stopp, já eða eitthvað annað sem krefst þess að hlutirnir stilli sig ekki í leyfisleysi.
Langar svolítið í einhverja af nýju pentax dSLR vélunum, þær eru með svolítið skemmtilega stillingu sem heitir TAv (eða var það ATv?) þar sem vélin stillir síðan bara ISOið til að breyta lýsingunni.