Segjum sem svo að þú kaupir myndavél á 80 þús í fríhöfninni og ferð svo í gegnum tollinn þá láta þeir þig borga 19,600 í vsk þannig þú ert að kaupa vélina á 99,600 kall og ef þú borgar ekki geta þeir tekið vélina af þér.
Það er auðvitað hægt að troða vélinni ofaní tösku og reyna að smygla henni í gegn en það væri best að borga bara þennan 19,600 kall og geima allar kvittanir, þannig ef þú ferð í útlönd og villt hafa vélina með þá sýniru þeim (tollinum) kvittarninar og þá þarft þú ekki að borga aftur vsk af vélinni.
Þess má til gamans geta að ef þú kaupir eitthvað sem kostar minna en 35 þúsund (minnir mig) þarftu ekki að borga toll.
Flugvélar voru hannaðar til að fljúga þeim, ekki til að komast inn í þær!