Ég bý í Svíþjóð og mér langar soldið að sýna félugum mínum hérna einhverja flotta mynd af Íslandi. Myndirnar mínar liggja bara eitthvað útum allt á tölvunni eða í albúmum þannig að ég get eiginlega ekkert verið að leita útum allt af einhveri ákveðinni mynd. Ég hef eiginlega enga hugmynd um hvaða staður á Íslandi er flottastur og kemur best út á myndum en ég veit að ég hef verið þar og á mynd þaðan því að ég hef verið soldið útum allt á Íslandi. Getur ekki einhver komið með tillögu um hver er flottasti náttúrustaðurinn á Íslandi og þá get ég leitað upp mynd þaðan og sýnt vinum mínum.
Bara komið endilega með tillögur, það mundi hjálpa mér.
Kv. StingerS