Ég myndi ekki kaupa vél undir 10 þúsund, gerði það sjálfur við fyrstu stafrænu vélina mína og var mjög óánægður, þær eru einfaldlega svo lélegar ef þær eru svona ódýrar.
Ég myndi ekki kaupa vél ódýrari en svona 20 - 30 þúsund, Canon Powershot A300 er t.d. á um 25 þúsund og þá erum við að tala um vél sem bara tekur myndir, ekkert svosem sniðugt við hana, reyndar ágæt vél ef þú ert bara að taka tækifærismyndir.
En ég myndi ekki kaupa það ódýrasta, því það er í flestum tilfellum það versta.