Hvort sem þið takið fallega mynd af einhverju eða mynd af einhverju fallegu þá á sú mynd rétt á sér í þessa keppni.
Mikilvægt____________________
1. Keppnistímabil: 8. febrúar til 19. febrúar
Myndin verður að vera tekin innan keppnistímabilsins!
2. Merkja skal myndirnar svona: “Nafn myndar - ”Fegurð" (gæsalappir eiga að fylgja með)
3. Ein mynd að hámarki frá hverjum þátttakenda.
4. Notandi sem sendir inn skal sjálfur hafa tekið myndina.
5. Stærðartakmörk: 400pixlar á smærri kannt er lágmarkstærð. Stærsta sem Hugakerfið hleypir inn er 1024x786 pixlar.
___________________________