Eftirfarandi er sótt frá www.tollur.is.
Minn skilningur er sá að menn sleppa
ekki við aðflutningsgjöld ef verðmæti
sendingarinnar er meira en 7000 íkr,
þó svo að afmæliskort fylgi.
—
Gjafir sem aðilar búsettir erlendis senda hingað til lands
af sérstöku tilefni, þó ekki í atvinnuskyni, skulu
undanþegnar aðflutningsgjöldum að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
1. Að verðmæti gjafar samkvæmt framlögðum reikningi sé ekki
meira en 7.000 kr. Fylgi reikningur ekki vörusendingu skal
tollstjóri áætla verðmæti með hliðsjón af líklegu smásöluverði
hér á landi. Sé verðmæti gjafar meira en 7.000 kr. skal reikna
aðflutningsgjöld að því marki sem verðmætið er umfram þá
fjárhæð. Brúðkaupsgjafir skulu undanþegnar aðflutningsgjöldum
enda þótt þær séu meira en 7.000 kr. að verðmæti, enda sé að
mati tollstjóra um eðlilega og hæfilega gjöf að ræða.
2. Að viðtakandi sýni fram á að um gjöf af sérstöku tilefni
sé að ræða. Gjafir vegna afmælis, brúðkaups, jóla eða fermingar
teljast m.a. vera gjafir af sérstöku tilefni í þessu sambandi.
3. Að sending beri með sér að um sé að ræða gjöf frá tilteknum
aðila búsettum erlendis og að tengsl séu á milli þess aðila og gjafþega.
Sé ljóst af fylgiskjölum eða samsetningu gjafasendingar að hún
sé ætluð tveimur eða fleiri aðilum og gjöfunum hafi eingöngu
af hagkvæmnisástæðum eða vegna tilefnis sendingar verið pakkað
saman til flutnings skal gjöf til hvers og eins talin sjálfstæð
gjöf við mat á því hvort gjöfin teljist innan verðmætamarka
skv. 1. tölul. 1. mgr.
Undanþága aðflutningsgjalda samkvæmt þessari grein tekur hvorki
til áfengis- né tóbaksgjalds.