Spegill, ó spegill herm þú mér,
spyr ég og segi, ég fegurst er.
Glerflykkið svarar, GLEYMDU ÞÉR!
Glottandi útí geiflur sér.

Ó,ég móðgast, blygðastu þín!
Ómögulegi Spegill, nú í þér hrín!!
Ég brýt þig aftur, brestu í grát,
brjálast ég aftur, án allrar gát.