Þú ert barn myrkursins.
Nóttin hefur fóstrað þig,
sáð sorta sínum
í sál þína.
Augu þín,
eins og botnlaus himinn,
spegla rökkkrið
og óttann
sem í þér býr.
Því jafnvel næturbörn
geta óttast
myrkrið.
Samdi þetta um mann sem ég þekkti einu sinni. Það var mikið myrkur í honum, en líka mikil birta.