Oft
um kaldar nætur
í heitum potti
horfi ég upp
í stjörnubjartan himininn
vel mér eina tiltekna perlu
í glitrandi fjöldanum
og velti fyrir mér;
hver starir á móti ?

Það sama gerist
þegar ég horfi í vatnið.
En að sama skapi
veit ég ekki svarið.