Foss kennda,
ástar og sorgar,
í klakaböndum.
Mitt hjarta
svo kalt.
Án þín.
Lífsviljinn
fjarlægur
og óþekktur.
Horfinn
úr ungri sál.
Andinn
sem þurrausinn brunnur
eftir stendur.
Bíður eftir vorinu,
leysingum,
lífinu.
Bíður þín.
—
Tilfinningalegur vetur.