Þótt ég væri frjáls undir gráum himni
við jörð fastur ætíð og varla áhorfandi
tindrandi fjarlægra heima.
Þótt ég væri frjáls úr viðjum veruleikans,
mundi ég aldrei flýja sjálfan mig.
Dauðinn flýgur yfir vatninu
á undan eldinum
og óhultur verður að stein
meðan eldurinn brennur út og deyr.