Þessu laust í höfuðið á mér þegar ég var við það að sofna í gærkvöldi. Ég rétt náði að skrifa það niður áður en ég gleymdi því.
Þegar þú hlærð
springa blómin út
eins og draumar sem rætast
rignir af himnum gleðitárum
rís sólin um miðja nótt,
til þess eins að hlusta.