Já, veit ekki hvort að þetta er ljóð og hvort að þetta flokkast undir stuttu.. Þetta er líka fljótlega gert fekk bara smá kast og skrifaði þetta.. Veit að þetta er lélegt og fljótlega gert og rímar ekkert.. Just wrote after past experience, ekkert skáld, just reality.. Svo ekki fara að kvarta undan því, bara dramatískt kast

——-

Ég er ný
Fyrir þér
Eg er gömul
Fyrir mér
Ég er smá og hljóðlát
Í þínum augum
En þú ert ógeðslegur
Í mínum augum
Svo í staðinn fyrir að hjálpa mér
Legguru mig í einelti
Þú byrjar
Vinur þinn berst í hóp
Bekkurinn berst í hópinn
Og allur skólinn að lokum
Hvað gerði ég?
Á ég þetta skilið?
Ég hugsaði um gamla húsið mitt
Gamla staðinn minn
Lífið sem ég hafði
Ég var svona
Eins og þú
Þá hlýt ég að hafa átt þetta skilið
En þrátt fyrir allt
Þá sakna ég þessa persónu
Þessa sem ég var
Ég gat brosið með meiningu
Ég grét ekki á hverjum degi
Ég sakna mömmu
Eg sakna heimilins
Ég sakna vina minna
Ég sakna mín
Ég borða ekkert
Því að við erum svo fátæk
Pabbi vinnur allan daginn
En fær aldrei borgað
Hann reiðist mín
Því að ég neita að fara í skólann
Ég vil ekki segja honum
Að ég er lögð í einelti
Að ég er þunglynd
Að ég er hrædd
Að ég dreymi um dauðann
Að ég hati mig
Ég vil ekki fá hjálp
Ég á hana ekki skilið
Ég vil ekki lifa
Því að ég er ekki þess virði
Til hvers þarftu að horfa á mig á hverjum degi
Hlægja og kalla..
Kalla mig Druslu
Þegar ég nú þegar veit
Þú bara endurtekur það
Endurtekur það
Aftur og aftur
Þér er sama
Þér finnst þetta fyndið
Ég hef svo lítið sjálfstraust
Ég hef svo lítinn mátt
Vinir mínir gera grín af mér
Óvinir mínir gera grín af mér
Allir hata mig
Allir reiðast mér
Bara því að ég er hrædd
Ég þori ekki að horfa á þig
Ég þori varla að horfa í spegilinn
Ég þori ekki að fara út
Ég þori ekki að fara í skólann
Ég þori ekki úr þessu herbergi
Ég þori ekki að deyja
Ég er orðin svo einmana
Að ég er að verða geðveik
Ég er orðin svo hungruð
Að ég er að svelta
Ég er orðin svo þunglynd
Að ég er að dreyma, um sjálfsmorð
En ég þori ekki
Því að ég veit ekki hvað dauði er
Ég vona að það er ekkert eftir dauðann
Ég vil ekkert meira
Ég er hrædd