Mig bara langar svo mikið
til að vera með
honum
en þá er ég ekkert nema
drusla
ógeð
svikari
þótt að hann hafi ekkert viljað
með mig hafa
ég var ekki lengur nógu
spennandi
merkileg
aðlaðandi
skemmtileg
og þótt ég reyndi að gefa og gefa honum
allt
- þótt ég hafi aldrei fengið
jafn mikið til baka
þá var það bara ekki
nóg
og núna stend ég á
krossgötum
þar sem er togað í mig úr sitthvorri
áttinni
og ég veit ekki hvert á ég að
snúa mér
og hausinn á mér er svo
brenglaður
að stundum langar mig bara til þess að
gleymast
því þetta er svo
sárt
——
Var að reyna að læra og gekk ekki vel, haha.