Á miðvikudaginn 6. febrúar hófust kvöld á Sirkús sem nefnast Andmæli. Andmæli boðar málfrelsi og óhefta tjáningu við opinn míkrófóninn á staðnum.
Fyrsta kvöldið var gríðarlega vel sótt af þekktum sem óþekktum listamönnum sem stigu á stokk, fluttu ljóð, sungu, röppuðu og bítboxuðu. Nú verður ekki aftur snúið því Andmæli verður fastur liður á Sirkús annan hvern miðvikudag. Næsta kvöld er semsagt annað kvöld klukkan 9.
Be there or be…square..:p
Rodo