Það var einu sinni köttur sem hvarf.
Hann hafði ekkert nafn, því ekkert hafði til hans spurts né sést áður fyrr,
svo það var enginn tilgangur í því að kalla eitthvað sem enginn vissi um.
Greyið kötturinn hafði horfið sporlaust áður en nokkurt mannsauga hafði getað litið á hann, svo í rauninni hafði kannski bara aldrei verið til.
Aumingja kötturinn,
sem jörðin gleypti.
Kannski mjálmar hann og mjálmar, hvæsir og klórar,
en öllum stendur á sama.
Hann er jú ekki til.