Vesalingurinn;
Þarna liggur hún, alla daga
og lætur allt og alla
vaða yfir sig.
Liggur hreyfingarlaus,
meðan það er traðkað ofan á henni
og jafnvel nuddað skít í hana.
Hún hefur ekki gert neitt rangt,
en hún fær samt aðeins athygli
þegar hún er of drullug til að sjást.
Hún er þögul og traust,
er auðveldlega rifin
en stendur alltaf fyrir sínu.
Við eigum margt sameiginlegt,
við mottan.