Blekking


Þú ert ömurleg.
Þú getur ekki neitt
í neinu.
Þú ert einskis virði
og þú ættir ekki
að vera til.
Þú þjónar engum tilgangi
heldur ert bara fyrir.
Ég vildi að þú myndir ekki
birtast á móti mér í hvert skipti
sem ég lít í spegilinn.