Ég rakst á mjög fallegt ljóð á netinu sem kanski flestir kunna og þekkja. Ég hef ekki heyrt það sungið eða séð það lengi svo mér datt í hug að koma með það hér til upprifjunar. Þetta er ljóðið Það vex eitt blóm fyrir vestan eftir Stein Steinarr.
ÞAÐ VEX EITT BLÓM FYRIR VESTAN
Það vex eitt blóm fyrir vestan
og vornóttin mild og góð
kemur á ljósum klæðum
og kveður því vögguljóð.
Ég ann þessu eina blómi
sem aldrei ég fékk að sjá.
Og þangað horfir minn hugur
í hljóðri og einmana þrá.
Og því geng ég fár og fölur
með framandi jörð við il.
Það vex eitt blóm fyrir vestan
og veit ekki að ég er til.
Kveðja Bomba