Fjarlægðin gerir fjöllin blá
og mennina mikla
nálægðin gerir skýin grá
á stóru má stikla

Nálægðin gerir fjöllin græn
líka brún og rauð
fjarlægðin svarar allri bæn
og gefur daglegt brauð