Ég stóð í tunglskininu,
nakinn.
Með laufblað fyrir manndómnum
hélt ég áfram
að breytast í varúlf.

Ég rankaði svo við mér
í annarri vídd
þar
sem
landvörðurinn Kjartan
tók mér opnum örmum.