Á þessu andartaki
vil ég ekkert meir
en að veltast um í mínu eigin þunglyndi.
Liggja þar og gráta.
Finna bitran veruleikann stinga mig
og gnísta inn að beini.

En á þessu sama andartaki
vil ég bara að þú komir
og haldir utan um mig.


——————–

Þetta bara poppaði upp í hausnum á mér fyrir ca. 20 mín, kannski ekki beint ljóð en ég ákvað samt að setja þetta hér inn…
Fyrsta skipti sem ég geri eitthvað svona þannig það væri mjög gaman að fá að vita hvað fólki finnst, hvað mætti bæta og þannig lagað :)