Gjöfin
Þú komst
Þú brostir
Þú faðmaðir
Þú kysstir
Þú tókst
Alla mína gleði
Þegar þú fórst
Ég var
Ég brosti
Ég faðmaði
Ég kyssti
Ég fékk
óvænta gjöf
Þegar þú fórst
Hún fæddist
Hún brosti
Hún faðmaði
Hún kyssti
Hún varð til
Áður en þú fórst
Þögnin
Þögn.
Þegar ég hitti þig var þögn.
Þú sagðir ekkert.
Ég sagði ekkert.
Við horfðumst í augu.
Tónlistin byrjaði að hljóma í hjörtum okkar
Við dönsuðum
Við elskuðumst
Við sungum
Uns hún kom
Þið sögðuð ekkert
Þið horfðust í augu
Þið dönsuðuð
Þið elskuðust
En hjá mér, var þögn.
(k)