Augun skima - flóttaleg.
Kvíðin. Hrædd.

Eins og hún viti ekki hvað verður næst.

Pilsið stutt. Blússan blá.
Eiginlega lagleg kona.

Meðfram múrnum - sex metra háum -
gengur hröðum skrefum. Ákveðin.
Hverfur undir hliðið áletrað stórum stöfum.

Strangeways High Security Prison.

- - - - - - -

“Hér búa aðeins illir menn,”
segir konan við hlið mér,
“bara þessir allra verstu.”