Vor…er árstíð
Sumar…er árstíð
Vor hoppaði ofaná Sumar,
sumarið sagði hey, hey, hey.
Vorið sagði hné, hné, hné.
Sumarið sagði: Þú meiðir mig
Sumar hoppaði ofaná Vor,
Vor sagði hey, hey, hey.
Sumarið sagði hné, hné, hné.
Vorið sagði: Þú meiðir mig
Sumar og Vor voru vinir.
Þeir sögðu við höfundinn:
“Af hverju léstu okkur berjast?”
Þá sagði vetur með sinni dimmri rödd:
“Þegiði.”
Höfundur hugsaði…
Hvaða ljóð
Er svona?
Ég veit,
Ekkert,
Nema,
Þú.