Vasaklútur fýkur í sviftandi vindum umferðar
Gömul kona fylgist með
undrandi yfir því að fyrri eigandi hafi verið með blóðnasir
Er í lagi með hann hugsar hún, eitt augnablik
Heldur áfram göngu sinni,
þenkjandi hvaðan blóðið hafi komið.
Bíll keyrir yfir hana.