Af agnarsmáu fræi
í jörðu falið
fyrir svo sem hundrað árum
Í fyrstu
óttalega væskilslegt.
Lofaði litlu.
Atti vart kappi við grasið í kring.
Hægt og bítandi
safnaði áhringum
viðarstofni.
Laumaðist til að vaxa
þegar enginn sá til.
En ….
einn daginn var komið voldugt tré.