Hver sál er eyland,
heimsálfa jafnvel,
með sitt eigið líf,
sársauka, gleði og sorgir.

Sjá, ótal eyjur, allar
umluktar hafi hins ósagða.
Huldar mistri.

Aðeins söngur fuglsins fljúgandi
endurómar fegurð eyjunnar
handan hafsins
óljósa, þokukennda.

Dreymi að úr hafinu
rísi voldug brú,
úr tveimur verði ein.