Ljóðin mín eru sérkennileg en þetta eru óhefbundin gátuljóð!
LAND
Land og þjóð hefur hefur ár
en ekkert vatn.
Land og þjóð hefur Skóga
en engin tré.
Land og þjóð hefur vegi
en enga bíla.
Land og þjóð hefur borgir
en engin hús.
FERÐALANGUR
Hann er lítill harður vitleysingur
sem gerir hvað sem hann getur.
Slímugur lítill ruglidallur sem
aldrei verður óðolimóður
og fer sér því hægt
en þrjá metra á dag
er nóg fyrir hann.
GEÐVEIKI
Hann hefur milljón pinna
sem stingast í allar áttir
en allir nota það einhverntíman
á ævinni,
rennur niður langa, stutta, miðlungs
spotta
ÞAÐ SKRÍTNA
Neglur á litlum stöngum
sem standa útúr klump,
sem neðstur er
Tvær stangir koma sithvoru megin út,
önnur heldur á priki
og hin stiður sig við
miðjan kemur svo,
feit, mjó, bunga.
svo er það efsti klumpurinn
loðinn, blautur, hljóð og tár.
Allt getur gerst.