Austur yfir sjóinn ég hugsa til þín,
en hvort þú gerir það sama,
að hugsa yfir sjóinn, að hugsa til mín,
ég vona að þú gerir það, dama.

Því aldrei hef ég átt eins nótt,
& þá sem við áttum um árið.
Þú ert ástin sem ég gleymi ei fljótt,
svo komdu og bittu um sárið.

Enn ég sakna þín mikið mjög,
meira ég get ekki saknað.
Í draumum mínum ég sem til þín lög,
en ég man bara ekkert er ég vakna.

Þess vegna er ég að reyna nú,
að yrkja lítið sætt lag.
Umfangsefnið er auðvitað þú,
en ekkert gengur í hag.

Svo þegar þú kemur loks,
ætla ég að fara með lagið.
En ég veit að það kemur bara eitt stórt koks,
en ég vona að þú kunnir samt fagið.

Fagið við að getað séð það fljótt,
séð það sem ég reyni að meina.
Ef þú skilur skal ég lofa í nótt,
lofa að gera þig óhreina.

Því aldrei hef ég átt eins nótt,
& þá sem við áttum um árið.
Þú ert ástin sem ég gleymi ei fljótt,
svo komdu og bittu um sárið.

Svo austur yfir sjóinn ég hugsa til þín,
en hvort þú gerir það sama,
að hugsa yfir sjóinn, að hugsa til mín,
ég vona að þú gerir það, dama.

Kveðja, sopranos