Gamalt ljóð sem ég hef verið að krukka í og breyta, ábendingar þegnar með þökkum.

Ég beið þess að þögn þín
talaði til mín.

Ég hlustaði eftir skilaboðum
milli þögulla línanna.

En ekkert gerðist
og þögn þín var hvell og skerandi
því hún sagði ekkert.