Það kemur öðru hverju fyrir að ég fæ sniðuga hugdettu að ljóði/lagi/einhverju. Hérna er eitt sem kom í gær í smá galsa þegar ég var að keyra heim.

Með lokuð augun og spenntar greipar,
þau sofa líkt og heimurinn hafi ei illt að bjóða.
Ef þau bara vissu þá sorg og depurð,
sem ríkir meðal þeirra vitandi.
Já, ef þau bara vissu,
elsku afi og amma.<br><br><a href="http://www.hugi.is">Hugi.is</a