Ég bað hana um koss
með angurmæddu brosi hún sagði
“þú ert ekki lengur
sá sem ég þekkti”.
Hún þagði um stund
og lágum rómi mælti.
“Ég þekki þig ekki lengur,
hvert fórstu, hvar ertu
mín æskuást”.