græn ský fljóta á rauðum himni
gul blóm vaxa á fjólubláu engi
svartir og hvítir kettlingar
blunda saman í körfu
appelsínur keyptar í bláu neti
þess vegna er ég…
rétt verður að röngu
heimska verður að gáfum
hatur breytist í ást
sæla breytist í sársauka
þess vegna er ég…