Í kirkjugarðinum.
Í kirkjugarðinum.
Ég hlusta á tréin
Í kirkjugarðinum hvína
Ég horfi á legsteinana
Á leiðunum
Ég les nöfn
Löngu látinna manna
Finn friðinn, þögnina
Finn dauðann, lífið
Tilgangur lífsins
Eða tilgangsleysi
Spyr spurninga í vindinn
Og læt þögnina svara.
Fyllist lotningu
Virðingu og söknuði.
mks