Kossinn, minn helsti unaður.
Tveir munnar mætast,
tvær varir snertast,
tvær sálir faðmast. -
Tíminn stoppar.
Líkaminn hitnar,
hugurinn róast,
sálin svífur. -
Já kossinn, mín dýrmætasta gjöf,
sem stóri andinn í skýjunum gaf mér;
sem mín ástkæra dúfa fær með mér að njóta;
sem ég verð ævinlega þakklátur fyrir.
Lifið heil,
Lifið vel,
Lifið frjáls.