Lilja Ló gengur um eina stjörnubjarta nótt,
já þar fer hún, svo sæt og fín og flott,
fyrir henni er lífið, æðislegt og gott.
Hún á framtíð bjarta, og drauma geymir,
hún Lilja Ló, veslings unga fljóð,
lífið er ekki lítið fallegt ljóð.

Naggur Nostri, var dökkur á brún og brá,
hann vildi ekkert gera, en allt vildi fá,
hann veröld vilda flýja, því ekkert gott hann sá.
Hann glæpi framdi og konur lamdi,
já Naggur Nostri, böðullinn hann er,
því með lífið þitt burt hann fer.

Kvöld eitt Lilja Ló um götu eina gekk,
þar Naggur Nostri sat á gömlum viðarbekk,
hún lítið lag söng, en lyf hann sér fékk.
“Halló litla sæta snót, langar þig í fallegt dót?”
Já hún hefði átt að vita betur,
en hið litla fljóð hjá honum situr.

Það var svartnæti, stjörnubjart það var,
einsamall köttur, mús í kjaftinum bar,
já engin annar var á ferli þar,
nema Naggur Nostri sem einn þaðan gekk.