Þú unga dís
sem hörpuna mína geymir. -
Af öllum hinum skarar þú
í fegurð sem og þokka.
Undur gerir þú
sem ég hef hvergi áður séð,
listir sem ég vissi ekki um,
Ó fagra stolta dís því faldir þú þig
svo lengi frá mínu forvitna hjarta?
Ég vil þig faðma;
undur þín sjá;
listum þínum njóta;
af aðdáun vil ég hjá þér vera.
Þú yndisfagra dís sem
hörpuna mína geymir.