Í dag
rigndi
spjótsoddum

fólkið hljóp
sem fætur
toguðu
undan
blóðbaði náungans

á bárujárnsþökunum
má sjá
storkið blóðið

nóttin
hylur allt
og þögnin
kæfir ópin
í koddanum

í nótt
rignir spjótsoddum