Rennur saman lítið eitt
lítið orð sem fellur af vörum þínum
í lind augna minna
hlusta á hjartslátt þinn
líða með huga mínum hægt
og ég tek um þig ó svo brothætta ásjónu
bros færist um
og sólin blaktir
í brúnum augasteinum.
—–