Fíflin þagna
Fífl sem vildi svo margt segja
Fífl sem allir sögðu að þegja
Fífl sem enginn vild’ í heyra
Fífl sem vildi segja meira
Fífl sem vildi sjálft sig tjá
Fífl sem enginn vildi sjá
Fífl sem vildi bregða á stjá
Fífl sem átti að hverfa þá
Fífl sem vildi öskra hátt
Fífl sem sagt var að hvísla lágt
Fífl sem mátti segja fátt
Fífl sem átti voða bágt
Fífl sem vildi fréttir færa
Fífl sem allir vildu særa
Fífl sem aldrei mátti mæla
Fífl sem aldrei sá hið sæla