Tek það fram að þetta er ekki heldur eftir mig…

Í myrkrinu

Ég loka augunum og heyri.
Ég heyri í fuglunum fljúga í háloftunum
ég heyri í fiskunum synda í hafdjúpunum
ég heyri í vindinum þyrla laufblöðunum
ég heyri í hamingjunni svífa inn dalinn.
Ég tek fyrir eyrun og finn.
Ég finn fjaðrir strúkast við mig
ég finn vatnið gusast á mig
ég finn vindinn fara í gegnum hár mitt
ég finn hamingjuna geisla af mér
ég finn fyrir návist þinni.

Stony
Lala 60 Mage Skullcrusher EU <Shadow of the Past>