Kvalarfullur kvíðinn kitlar kjarklítið hjartað\
Ungur drengur gengur ekki lengur, hann hengur
út af hverju?
það er svo margt að\
kalt kvöld kveður kalda kvalda sál sem gat ekki kvartað\
út af hverju?
Það var allt að\

þegar þú hefur vini glatað\
geturu elskað eða hatað\
matað sjálfan þig á reiði\
grátið þykkum tárum yfir leiði\

þegar þú hefur vini glatað\
geturu elskað eða hatað\
séð það að allt sem hann gerði\
var keypt allt of dýru verði\


því lítill kvíði, getur orðið að sálarstríði\