Október

Laufin voru varla orðin rauð
er seinustu snjókornin vættu líkin
og fóðruðu beinagrind trésins.

Apríl

ég tók mér eitt snjókorn í hönd
og las blauta tilkynninguna,
þeir hafa víst frestað vorinu.
—–