Ég ann þér borg með átján þúsund hús
og eina rós í litlum stofuglugga.
Ég ráfa um þig bæði frjáls og fús
þótt finnist í þér varla nokkur tugga.



Ég þekki engan unaðslegri reit
og upphefð mikla hlaut á mínu flakki
því ég var bara belja í minni sveit.
Í borg ég varð að úrvals nautahakki.