Mér er svo sem
sama um
annarra hag.

Áhugalaus er ég
einnig um
þjóðlífsins brag.

Ég læt bara
hverri þjáningu
nægja sinn dag.